Icelandair lækkar um 8% í fyrstu viðskiptum

Icelandair.
Icelandair.

Hlutabréf Icelandair hafa lækkað um tæplega 8% í fyrstu viðskiptum dagsins. Er gengi bréfanna nú 3,13 krónur á hlut.

Viðskipti með bréf félagsins eru þó mjög lítil það sem af er degi, eða rétt rúmlega sex milljónir.

Síðar í dag mun ríkisstjórnin kynna á blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu næstu skref í afléttingu hafta sem sett voru á vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Hlutabréf norska flugfélagsins Norwegian hafa einnig lækkað mikið í dag og öllu meira en hjá Icelandair. Hafa bréf félagsins lækkað um 34% það sem af er degi, en lækkunin var enn meiri við upphaf viðskipta þegar bréfin lækkuðu um 52%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK