Sverrir Örn nýr útibússtjóri á Egilsstöðum

Sverrir Örn Sverrisson, nýr útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum.
Sverrir Örn Sverrisson, nýr útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum. Ljósmynd/Arion banki

Sverrir Örn Sverrisson hefur hafið störf sem útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum. Sverrir Örn starfaði sem viðskiptastjóri hjá Arion banka á árunum 2016 til 2019 á höfuðborgarsvæðinu og sem viðskiptastjóri í útibúi bankans á Sauðárkróki í rúmt ár þar á undan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Segir þar að Sverrir hafi sterkar tengingar við Austurland þar sem hann hefur stundað nám og sinnt ýmsum störfum, m.a. í útibúi Arion banka og sem viðskiptastjóri Símans. 

Sverrir er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og með M.A. í alþjóðaviðskiptum og hagfræði frá Korea University.

Efnisorð: Arion banki
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK