Íslensk nýsköpun í íslenska raforkukerfinu

Landsnet og Laki Power hafa gert með sér samkomulag um …
Landsnet og Laki Power hafa gert með sér samkomulag um vöruþróun og frekari útbreiðslu á tækninýjungum Laka Power í íslenska raforkukerfinu Ljósmynd/Landsnet

Landsnet og Laki Power hafa gert með sér samkomulag um samstarf á sviði vöruþróunar og útbreiðslu á nýju eftirlitskerfi Laka Power, LKX-201, í íslenska raforkuflutningskerfinu.

Laki Power starfar á sviði rauntímaeftirlits með flutnings- og dreifikerfum raforku. Eftirlitskerfi Laka Power er einstakt og gerir það mögulegt að fylgjast með ástandi háspennuinnviða í rauntíma, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsneti. Kerfið byggir á PowerGRABTM tækni félagsins sem vinnur raforku úr rafsegulsviðinu sem umlykur háspennulínur. Lausnin er afar umhverfisvæn og skilar allt að 100 sinnum meira afli en aðrar samanburðarhæfar lausnir á markaði.

Eftirlitskerfi Laka Power er einstakt og byggir á PowerGRAB-tækni félagsins …
Eftirlitskerfi Laka Power er einstakt og byggir á PowerGRAB-tækni félagsins sem vinnur raforku frá háspennulínum án þess að tengjast þeim beint raffræðilega. Það er gert með því að nýta sterkt rafsegulsvið sem umlykur háspennulínur. Ljósmynd/Landsnet

Landsnet hefur komið að þróun og prófunum á eftirlitskerfinu LKX-201 frá upphafi og í dag eru tvær frumgerðir í notkun í íslenska raforkukerfinu. „Landsnet leggur áherslu á að styðja við íslenska nýsköpun og sjáum við mikil tækifæri fyrir eftirlitskerfi og tækni Laka Power í flutningskerfinu. LKX-201 kerfið er vistvæn lausn sem býður upp á áður óþekkta möguleika í rauntímaeftirliti sem geta haft í för með sér lægri rekstrarkostnað, betri nýtingu innviða og aukið rekstraröryggi,“  er haft eftir Nils Gústavssyni, framkvæmdastjóri hjá Landsneti, í tilkynningu. 

Sigurjón Magnússon, framkvæmdastjóri Laka Power, segir að samkomulagið við Landsnet styrki félagið í sókn sinni á alþjóðlegan markað. „Flutnings- og dreifiaðilar raforku þurfa í auknum mæli að reiða sig á rauntímaupplýsingar til að tryggja rekstraröryggi. Það er því mikilvægt að geta sýnt fram á virkni og útbreiðslu eftirlitskerfis á okkar heimamarkaði þegar kemur að viðræðum við erlend félög. Stuðningur Landsnets í vöruþróun og prófunum undanfarin ár hefur verið ómetanlegur og erum við hæstánægð með að taka næsta skref í okkar samstarfi með þessu samkomulagi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK