Eldsneytissala dregst verulega saman

Reiknuð sala á eldsneyti (í rúmmetrum) í lok mars 2020 var 42% lægri en meðal dagleg sala í mars 2019. Meðal sala sem af er apríl er 68% lægri en meðal dagleg sala í apríl í fyrra. Samkomubann var sett á 15. mars 2020, en í aðdraganda þess var sala eldsneytis um 8% hærri en meðal salan í mars 2019 að því er segir á vef Hagstofu Íslands.

Dagana fyrir samkomubann voru rúm 9% af sölu á erlend greiðslukort, en um miðjan mánuðinn var hlutur þeirra undir 1% af heildar sölu. Eftir að samkomubann var sett á dró úr sölu eldsneytis nokkuð stöðugt á milli vikna, en nokkur aukning í sölu mælist í byrjun apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK