Ekki óeðlilegt að áætla að 90% missi vinnuna

Icelandair hefur orðið fyrir gríðarlegu höggi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Icelandair hefur orðið fyrir gríðarlegu höggi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ef horft er til annarra flugfélaga í Evrópu og þeirra sem eru nú þegar komnir á hlutabótaleið hjá Icelandair er ekki óeðlilegt að ætla að um 90% starfsfólks Icelandair muni missa vinnuna, að sögn Jóns Þórs Þorvaldssonar, formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna. 

Í samtali við mbl.is segir hann að allir séu tilbúnir í að leggjast á árarnar til að halda flugfélaginu gangandi og eðlilegt væri að stjórnvöld myndu veita Icelandair aðstoð til þess að komast í gegnum efnahagslægðina.

RÚV greindi fyrst frá því að um 90% starfsfólks Icelandair gæti misst vinnuna. 

Jón Þór segir að óvissan sé mikil en frekari uppsagnir hjá Icelandair hafa verið boðaðar og verða þær að öllum líkindum stærri en þær sem á undan hafa gengið. 

„Við eiginlega bara bíðum. Við erum ekki með neinar tölur. Það er jafnvel beðið eftir einhverju útspili frá ríkisstjórninni skilst mér.“

„Ég finn það mjög sterkt hjá öllum að það eru …
„Ég finn það mjög sterkt hjá öllum að það eru allir tilbúnir í að leggjast alveg 100% á árarnar,“ segir Jón Þór um flugmenn. Haraldur Jónasson/Hari

Hagkerfið er allt saman undir

Jón Þór segir að menn geri sér grein fyrir alvöru málsins, séu undirbúnir fyrir það versta en voni það besta. 

„Ég finn það mjög sterkt hjá öllum að það eru allir tilbúnir í að leggjast alveg 100% á árarnar.“

Í gær boðuðu bæði hollensk og frönsk stjórnvöld stuðning við sín helstu flugfélög. Spurður hvort íslensk stjórnvöld ættu að gera það sama segir Jón Þór:

„Já, ég held að hagsmunirnir sem eru undir séu slíkir að fólk hljóti að gera sér grein fyrir því að til lengri tíma litið sé það skynsamlegt. Hagkerfið er allt saman undir. Flug- og flugtengdur iðnaður stendur undir um 38% af landsframleiðslu og það eru um 72.000 störf sem hvíla á þessum iðnaði beint eða afleitt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK