Hagnaður Össurar nam 7 milljónum Bandaríkjadala, 1 milljarði íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi og var 5% af veltu. COVID-19-heimsfaraldurinn hafði áhrif á rekstrarniðurstöður félagsins en sala dróst saman í mars.
Össur hefur frestað frágangi á kaupum á stoðtækjaframleiðandann College Park. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu Össurar í morgun.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar segir í tilkynningu: „COVID-19 heimsfaraldurinn hefur haft áhrif á rekstur Össurar og höfum við haft öryggi og helbrigði starfsmanna og viðskiptavina í fyrirrúmi. Núverandi eftirspurn er mætt en starfsmenn framleiðslunnar vinna á vaktaskiptum og flestir skrifstofu- og sölustarfsmenn starfa að heiman.
Faraldurinn hefur tímabundið neikvæð áhrif á eftirspurn eftir stoðtækjum og spelkum & stuðningsvörum vegna takmarkanna sem sett hafa verið á sumum mörkuðum til að hamla útbreiðslu á faraldrinum.
Rekstrarniðurstöður félagsins hafa þar af leiðandi orðið fyrir neikvæðum áhrifum og enn er óljóst hversu lengi áhrifin munu vera viðvarandi. Söluvöxtur á fyrstu tveimur mánuðum ársins voru í takt við væntingar en sala byrjaði að verða fyrir neikvæðum áhrifum sökum faraldursins í mars.
Við sjáum einnig töluverð áhrif á sölu það sem af er apríl en við erum þegar farin að sjá merki um bata í nokkrum af helstu mörkuðum okkar í Evrópu og sala í Kína var í apríl aftur á pari við 2019. Ekki er gert ráð fyrir að langtímahorfur í stoðtækja- og spelku- & stuðningsmarkaðinum breytist en þó má ætla að áhrifin af faraldrinum munu leiða til uppsafnaðrar eftirspurnar.
Mikil óvissa ríkir enn um horfur fyrir árið 2020 og getum við því ekki veitt uppfærða fjárhagsáætlun fyrir árið á þessum tímapunkti. Ég undirstrika þó að við erum fjárhagslega vel í stakk búin til að takast á við þessa óvissutíma. Ég vil þakka öllum starfsmönnum og viðskiptavinum félagsins fyrir sveigjanleika, jákvæðan teymisanda og framlag þeirra á þessum fordæmalausu tímum.“