Samþykkt möguleg ábyrgð á lánum til Icelandair

Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt tillaga fjögurra ráðherra um að ríkið væri tilbúið að eiga samtal um mögulega veitingu lánalínu eða ábyrgð á lánum til Icelandair. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, en undanfarnar vikur hefur fulltrúum stjórnvalda verið haldið upplýstum um stöðu félagsins, þar sem fram hefur komið að unnið sé að fjárhagslegri endurskipulagningu og söfnun nýs hlutafjár.

„Er aðkoma stjórnvalda háð því að fullnægjandi árangur náist í fjárhagslegri endurskipulagningu félagins í samræmi við þær áætlanir sem kynntar hafa verið, þ.m.t. að afla nýs hlutafjár, en fram er komið að félagið vinnur nú að framkvæmd hlutafjárútboðs fyrir lok næsta mánaðar," segir í tilkynningunni.

Samhliða þessari vinnu halda viðræður áfram um nánari forsendur fyrir mögulegri fyrirgreiðslu og skilmálum fyrir henni af hálfu stjórnvalda. Gangi áform félagsins eftir verður þingmál um fyrirgreiðslu ríkisins lagt fyrir Alþingi til samþykktar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK