Vefútgáfa bandaríska viðskiptaritsins Forbes gerir rekstri íslenska matvælaframleiðandans Good Good ítarleg skil í grein sem birt var í dag.
Good Good, sem stofnað var árið 2015, sérhæfir sig í matvælum sem innihalda náttúruleg sætuefni eins og stevíu í stað sykurs. Fyrirtækið hefur m.a. afrekað það að koma vöru sinni í efsta sæti á lista Amazon yfir mest seldu sulturnar í Bandaríkjunum og nýtur meðbyrs vegna vaxandi vinsælda ketó-mataræðis um allan heim.
Fyrr á þessu ári tryggði Good Good sér rösklega 400 milljóna króna hlutafjáraukningu sem nýtt verður til að efla sókn félagsins inn á Bandaríkjamarkað.
Forbes greinir frá að Good Good hyggist auka vöruframboð sitt á Bandaríkjamarkaði og m.a. hefja þar sölu á sælgætisstöngunum Krunchy Keto sem nú þegar njóta ágætisvinsælda í Evrópu. Hyggst Good Good koma sér upp söluteymi á Vesturströnd Bandaríkjanna og efla það teymi sem þegar heldur utan um söluna á Austurströndinni.
Markaðurinn fyrir kolvetnasnautt og ketónamyndandi (e. ketogenic) mataræði vex hratt, að sögn Forbes, sem vitnar í rannsóknir sem spá 5,5% meðalvexti árlega fram til ársins 2027. Voru sölutekjur Good Good fyrstu fjóra mánuði þessa árs 152% hærri en á sama tímabili í fyrra. Fást vörur fyrirtækisins nú í u.þ.b. 2.500 verslunum í 16 löndum og stefnt að því að sölutekjur nemi samtals 4,6 milljónum dala á þessu ári. ai@mbl.is