Bókabúð og kaffihúsi Máls og menningar hefur verið lokað um óákveðinn tíma. Frá þessu er greint á Facebook-síðu bókabúðarinnar, en Arndís Björg Sigurgeirsdóttir, annar eigenda Máls og menningar, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.
Arndís Björg gat ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu en sagði lokunina vera tímabundna.
Í tilkynningu Máls og menningar á Facebook eru viðskiptavinir beðnir afsökunar á ónæðinu og þeim þakkað fyrir skilninginn. Upplýsingar um hvenær opnar aftur verða birtar á samfélagsmiðlum.
Sjáumst síðar! 😊
Posted by Bókabúð Máls og menningar on Tuesday, June 2, 2020