Hver dagur færi fyrirtæki nær gjaldþroti

Samtökin lýsa verulegum vonbrigðum með Alþingi og ríkisstjórnina.
Samtökin lýsa verulegum vonbrigðum með Alþingi og ríkisstjórnina. mbl.is/Eggert

Ljóst er að eftir þrjá mánuði er tíminn til aðgerða nú á þrotum, lögsóknir gegn ferðaskrifstofum eru hafnar af fullum þunga og ljóst að hver dagur færir einstök fyrirtæki nú nær rekstrarstöðvun eða gjaldþroti.

Þetta segir í yfirlýsingu sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér.

Þar segjast þau leggja áherslu á þá staðreynd að núverandi ástand tryggi ekki hagsmuni neytenda umfram þá lausn sem lögð sé til í frumvarpi ferðamálaráðherra.

Fjöldi dæma sé um skýrar aðgerðir í öðrum ríkjum

„Raunveruleikinn er að margar ferðaskrifstofur eiga ekki lausafé til að endurgreiða öllum viðskiptavinum sínum samkvæmt núverandi reglum. Því mun núverandi ástand að óbreyttu óhjákvæmilega leiða til rekstrarstöðvunar eða gjaldþrota í þeim hópi fyrirtækja og þannig auka verulega líkurnar á því að neytendur muni þurfa að leita endurgreiðslu úr tryggingum viðkomandi ferðaskrifstofa,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

„Samtök ferðaþjónustunnar telja að á síðustu þrem mánuðum hafi verið færð nægilega skýr rök fyrir sértækum aðgerðum vegna vandans. Samtökin lýsa verulegum vonbrigðum með það að Alþingi og ríkisstjórn sjái sér ekki fært að koma til móts við þennan vanda ferðaskrifstofa og neytenda á neinn hátt, jafnvel þótt fjöldi dæma um skýrar aðgerðir vegna sama vanda liggi fyrir í fjölda annarra Evrópuríkja.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK