Hvetja farþega til að koma með eigin grímur

Áhöfn og allir farþegar, að undanskildum börnum undir tólf ára …
Áhöfn og allir farþegar, að undanskildum börnum undir tólf ára aldri, þurfa að vera með andlitsgrímur um borð. mbl.is/Eggert

Icelandair hvetur farþega til að koma með eigin grímur fyrir flugferðir með félaginu, og mælt er með því að fleiri en ein gríma verði höfð meðferðis fyrir ferðalög.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair, en einnig er tekið fram að grímur verði tiltækar um borð í flugvélum félagsins.

„Andlitsgríman má vera hvort sem er heimagerð eða keypt, en hún verður að hylja nef og munn. Taka má grímur niður til að neyta matar og drykkja um borð í vélinni. Farþegar sem finna fyrir flensulíkum einkennum eru hvattir til að fresta ferðalagi sínu,“ segir í tilkynningunni.

Gera ekki ráð fyrir fullum vélum

Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í samtali við mbl.is að Icelandair hafi engu breytt varðandi flugáætlun sína í tengslum við skimun stjórnvalda og engar áhyggjur séu uppi vegna farþeganna sem þurfa að fara í skimun.

„Við höldum bara okkar striki og metum stöðuna eins og þetta þróast. Við erum ekki að gera ráð fyrir fullum vélum til að byrja með,“ segir hún og bætir við að vinnan í kringum sýnatökur fari fram í góðu samstarfi við stjórnvöld.

Heilsa og öryggi forgangsmál

Eins og áður hefur verið greint frá hyggst félagið hefja á ný daglegt áætlunarflug til lykiláfangastaða frá og með 15. júní.

„Undirbúningur er nú í fullum gangi innan félagsins, meðal annars á sviði sölu- og markaðsmála og við frekari útfærslu sóttvarna um borð. Heilsa og öryggi farþega og starfsfólks er forgangsmál og fylgir félagið áfram ráðleggingum sóttvarnarlæknis og leggur á sama tíma áherslu á að koma til móts við væntingar farþega alls staðar að úr heiminum,“ segir í tilkynningunni.

Tólf ára og eldri verði með grímur

Ákveðið hafi verið að áhafnir og allir farþegar, að undanskildum börnum undir tólf ára aldri, þurfi að vera með andlitsgrímur um borð.

„Þetta er til þess að gæta fyllsta öryggis og koma í veg fyrir möguleg smit, til viðbótar við aðrar sóttvarnir, svo sem handþvott og notkun handspritts. Þjónusta verður áfram takmörkuð af öryggisástæðum og verður til að mynda engin matarþjónusta um borð fyrst um sinn en vatnsflöskur verða afhentar þegar gengið er um borð,“ segir í tilkynningu félagsins.

„Þjónustustig verður endurmetið þegar á líður. Þá verður Saga Shop lokuð að minnsta kosti fyrst um sinn. Félagið mun halda áfram að leggja áherslu á aukin þrif um borð í vélunum. Allir snertifletir eru þrifnir sérstaklega fyrir hvert flug og salerni sótthreinsuð á milli fluga.“

Saga Lounge verður opið

Enn fremur sé vel fylgst með loftgæðum um borð á meðan flugi stendur. Í vélum Icelandair sé notast við HEPA (e. High Efficiency Particulate Air) lofthreinsibúnað, sem sé sams konar búnaður og notaður er á skurðstofum. Búnaðurinn tryggi að algjör loftskipti eigi sér stað 20 til 30 sinnum á hverri klukkustund.

Saga Lounge, setustofa Icelandair, verður opin en þar hefur jafnframt verið gripið til viðeigandi ráðstafana en lágmarksþjónusta verður í boði og allar veitingar forpakkaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK