Samtals var hafin bygging 646 nýrra íbúða í Reykjavík ef litið er á útgefin byggingarleyfi á þessu ári frá janúar til júlí. Íbúðirnar eru flestar í fjölbýli eða 631, tíu íbúðir eru í tvíbýlishúsi og fimm einbýli.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkuborg.
Þar segir, að á árinu 2019 hafi 846 nýjar íbúðir farið í byggingu og því verði nýbyggingar að öllum líkindum fleiri í ár en í fyrra. Samtals hafi bygging hafist á 5.680 nýjum íbúðum frá ársbyrjun 2015 og það sé mesta uppbyggingartímabil nýrra íbúða í Reykjavík í áratugi.
„Árið 2018 var metár í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík en á því ári hófst bygging á 1.417 íbúðum í Reykjavík skv. útgefnum byggingarleyfum. Heildarfjöldi íbúðaeininga er hátt í 54.000 í borginni í dag.
Mesta samdráttarskeið í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík var frá 2009 til 2011 en þá var hafin smíði á samtals 282 íbúðum yfir tímabilið og þar af einungis tíu íbúðir árið 2010,“ segir ennfremur.