Kvarta til Seðlabankans vegna afskipta VR

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mynd/mbl.is

Samtök atvinnulífsins hafa ritað bréf til Seðlabanka Íslands þar sem fundið er að afskiptum stjórnar VR af Lífeyrissjóði verzlunarmanna. SA óskar eftir því að Seðlabankinn grípi til tafarlausra aðgerða, umfram almenn tilmæli til hagsmunaaðila almennt, til að standa vörð um sjálfstæði sjóðsins og hag sjóðsfélaga.

Þannig má tryggja að faglega verði staðið að fjárfestingaákvörðunum í sambandi við fyrirhugað hlutafjárútboð Icelandair. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef samtakanna.

Tilmælum beint til stjórnarmanna

„Forsaga málsins er sú að þann 17. júlí síðastliðinn sendi stjórn VR frá sér yfirlýsingu vegna málefna Icelandair sem hafa verið í deiglunni. Þar er þeim tilmælum beint til þeirra fjögurra stjórnarmanna af átta, sem VR skipar í stjórn sjóðsins, að sniðganga eða greiða atkvæði gegn þátttöku í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair,“ segir í tilkynningunni.

Það hafi verið gert vegna óánægju stjórnar VR með framgöngu Icelandair í kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands. Þá er vísað til þess að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði aðspurður að stjórnarmönnum yrði einfaldlega skipt út ef þeir fari ekki eftir tilmælum stjórnar VR.

„Að þessu hefur varaseðlabankastjóri fundið í fjölmiðlum og kallað ummælin bæði „óeðlileg og ófagleg“.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Hari

Stjórn VR reyni að taka beina stjórn á sjóðnum

SA segir að með kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands hafi Icelandair verið að reyna að búa flugfreyjum sambærileg starfskilyrði og tíðkast í nágrannalöndum okkar. Með því væri verið að reyna að tryggja samkeppnishæfni félagsins og standa þannig vörð um fjölda starfa hjá félaginu.

„Með yfirlýsingu sinni frá 17. júlí er stjórn VR að reyna að taka beina stjórn á sjóðnum og þeim fyrirtækjum sem hann er hluthafi í þvert á lög, reglur og góða stjórnhætti. Virðist þetta nú vera orðinn árviss viðburður stjórnarinnar, að sýna Seðlabankanum algera lítilsvirðingu og láta varnaðarorð aðstoðarseðlabankastjóra fjármálaeftirlits sem vind um eyru þjóta.

Samkvæmt lögum og eðli máls er sjóðurinn ekki í eigu eða undir stjórn VR heldur er hann til fyrir sjóðsfélaga hans og er stjórnað af stjórnarmönnum sem eiga að vera sjálfstæðir í störfum sínum gagnvart öllum, þar á meðal þeim sem tilnefna þau í stjórn, og fara að öllum lögum og reglum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK