Samkomulag hefur náðst milli sveitarfélagsins Ölfuss og Einingarverksmiðjunar um að starfsemi verksmiðjunnar flytjist í sveitarfélagið. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu Ölfuss og Einingaverksmiðjunar.
Fyrirhugaðar eru framkvæmdir á 4.000 fermetra iðnaðarhúsum og efnissílóum á Nessandi, nýskipulögðu iðnaðarsvæði utan við Þorlákshöfn. Einingaverksmiðjan hefur í áratugi sérhæft sig í framleiðslu forsteyptra eininga til byggingaframkvæmda og starfa á bilinu 40-50 manns hjá fyrirtækinu. Einingaverksmiðjan hefur verið staðsett á Breiðhöfða í Reykjavík.
„Það er afar ánægjulegt að að finna áhuga stórra sem smárra fyrirtækja á því að velja sér framtíðarstaðsetningu hér í sveitarfélaginu.“ Þetta segir Elliði Vignisson, sveitarstjóri Ölfuss í tilkynningu. Jafnframt segir hann tilhlökkun vera á meðal forsvarsmanna sveitarfélagsins að hefja samstarf með verksmiðjunni.