Síðustu verslun Nóatúns sem staðsett er í Austurveri, verður lokað til frambúðar á föstudag. Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Nóatúns, segir að um ákveðin tímamót sé að ræða.
„Það er söknuður að þessu. Fyrsta Nóatúns-búðin opnaði í Nóatúni 17 árið 1965. En eins og þetta hefur verið á Íslandi síðustu ár hafa allar þessar búðir hægt og bítandi verið að færast yfir í lágvöruverslanir. Það er alltaf að verða þrengri og erfiðari rekstrargrundvöllur fyrir svona sérhæfðari verslanir. Þær eru orðnar fáar eftir, aðallega bara Fjarðakaup, Melabúðin og við,“ segir Trausti.
Í október stendur til að opna nýja Krónuverslun í húsnæði Nóatúns.
„Svo erum við náttúrulega í eigu Festi sem er að reka Krónuna og það er svakalega góður gangur á Krónunni, það hafði líka áhrif, að það hafi verið eftirspurn eftir því að fá Krónuna í hverfið. En við erum náttúrulega allt öðruvísi og sérhæfðari verslun, erum með kjötborð og heitan mat í hádeginu og svona.“
Allar vörur Nóatúns eru á 30% afslætti út föstudaginn. „Svo losum við bara allt út og það kemur teymi iðnaðarmanna strax eftir helgina og þá byrjar ballið. Það mun taka einhverjar vikur að snúa þessu öllu í gott Krónuhorf,“ segir Trausti.
Öllum starfsmönnum Nóatúns stendur til boða starf hjá Krónunni.
„Ég býst við að langflestir starfsmenn Nóatúns hefji nýtt líf í gula búningnum,“ segir Trausti.
„Nóatún og Hagkaup eru þessar elstu verslanakeðjur á Íslandi og nú er önnur að hverfa á braut. Það verður söknuður af þessu verður maður bara að segja. En það kemur bara eitthvað nýtt í staðinn,“ segir Trausti.