Icelandair fær 16,5 milljarða ríkisábyrgð

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Íslensk stjórnvöld ákveða að veita Icelandair Group ríkisábyrgð á lánalínu að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. 

„Eins og tilkynnt hefur verið um, hafa viðræður staðið yfir milli Icelandair Group og íslenskra stjórnvalda í samvinnu við viðskiptabanka félagsins, Íslandsbanka og Landsbankann, um útfærslu á lánalínu með ríkisábyrgð til félagsins.

Íslensk stjórnvöld hafa nú ákveðið að veita félaginu slíka ábyrgð á lánalínu að fjárhæð allt að 120 milljónir Bandaríkjadala (um 16,5 milljarða króna á núverandi gengi). Ábyrgðin mun nema 90% af lánsfjárhæðinni og er háð samkomulagi aðila um skilmála hennar, samþykki Alþingis og að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár,“ segir í tilkynningu frá Icelandair. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK