Breska verslunarkeðjan Marks and Spencer ætlar að segja upp sjö þúsund starfsmönnum vegna áhrifa af völdum kórónuveirunnar. Starfsmönnunum verður sagt upp næstu þrjá mánuði og er um að ræða fólk sem starfar víðsvegar um Bretland að ræða.
Mjög hefur dregið úr heimsóknum í verslanir M&S vegna COVID-19 enda voru flestar verslanir lokaðar í um það bil tvo mánuði í Bretlandi fyrr á árinu.