Már í starfshópi fjármálaráðherra

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum, með tilliti til hagsmuna ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Meðal þeirra sem sitja í starfshópum er Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri.

Bæði verða metin skammtímaáhrif og áhrif á getu hagkerfisins til þess að taka við sér af krafti að nýju þegar faraldurinn og áhrif hans líða hjá. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins.

„Heimsfaraldur COVID-19 og viðbrögð við honum hafa haft djúpstæð áhrif á íslenskt efnahagslíf frá því snemma á þessu ári. Stjórnvöld hafa beitt sérstökum úrræðum á landamærum til þess að takmarka útbreiðslu sjúkdómsins innanlands, m.a. með kröfum um sóttkví og skimanir, en slík úrræði hafa víðtæk efnahagsleg áhrif.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birti greinargerð og minnisblað þegar ákvarðanir voru teknar um breyttar aðgerðir á landamærunum í júní og ágúst. Því til viðbótar hefur ráðuneytið unnið minnisblöð um einstaka þætti og þróun mála fyrir ráðherranefndir og ríkisstjórn. Í ljósi þess að áhrifa faraldursins mun gæta a.m.k. næstu mánuði og að hann er síbreytilegur, bæði hérlendis og erlendis, þurfa viðbrögð stjórnvalda að vera í stöðugri endurskoðun. Mikilvægt er að unnin verði frekari greining á efnahagslegum kostnaði og ábata ólíkra sóttvarnaraðgerða og þeim valkostum sem helst kunna að koma til álita.

Starfshóp ráðherra skipa Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, mun starfa með hópnum. Analytica ehf. verður starfshópnum til aðstoðar. Starfshópurinn skilar ráðherra reglulegum greiningum á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum.“

Ásdís Kristjánsdóttir.
Ásdís Kristjánsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg
Tómas Brynjólfsson
Tómas Brynjólfsson Mynd/Fjármála- og efnahagsráðuneytið
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK