Vinnan ómerk án fulltrúa launafólks

Drífa Snædal forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB.
Drífa Snædal forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB. Ljósmynd/ASÍ

Forystukonur ASÍ, BHM og BSRB mótmæla því harðlega að fjármálaráðherra ætli ekki að hafa fulltrúa launafólks með í ráðum við mat á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnamálum.

Við köllum eftir því að starfshópur fjármálaráðherra sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnamálum verði breikkaður þannig að sjónarmið fleiri en atvinnurekenda fái að koma þar fram. Það er gamaldags viðhorf að efnahagsmál snúist fyrst og fremst um fyrirtæki en ekki heimili og almenning,“ segir í tilkynningu frá Drífu Snædal, forseta ASÍ, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB, og Þórunni Sveinbjarnardóttur, formanni BHM.

Bent er á að í tilkynningu fjármálaráðuneytisins um skipan starfshópsins sé tekið fram að hann eigi að taka tillit til ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Þar hafi fulltrúi stórfyrirtækja, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, verið kallaður til en fulltrúar launafólks eru víðs fjarri.

Þetta sé til marks um rörsýn fjármálaráðherra í efnahagsmálum sem geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt samfélag til framtíðar.

„Við krefjumst þess að fjármálaráðherra boði fulltrúa launafólks að borðinu þegar í stað. Að öðrum kosti verða tillögur starfshópsins og vinna hans ómerk.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK