Iðnþing Samtaka iðnaðarins 2020 fer fram í dag á milli 13:00 og 14:30. Yfirskrift þingsins í ár er „nýsköpun er leiðin fram á við.“ Þingið verður sent út beint og má meðal annars fylgjast með því í spilaranum hér að neðan.
Auk erinda frá forsvarsfólki samtakanna mun Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra flygja ávarp og þá verða umræður þar sem sex stjórnendur úr íslensku atvinnulífi fara yfir stöðuna.
Í tilkynningu kemur fram að kastljósinu verði beint að því hvernig við mætum áskorunum um fjölgun nýrra starfa. Þar gegnir nýsköpun veigamiklu hlutverki, hvort heldur er í rótgrónum fyrirtækjum eða nýjum sprotafyrirtækjum. Tækifærin liggja víða og á þinginu verður horft til þess hvernig nýsköpun getur drifið vöxt framtíðar.
Dagskrá