Gengi bréfa Eimskips lækkar talsvert

Eimskip.
Eimskip. Ljósmynd/Eimskip

Gengi hlutabréfa í Eimskip hefur lækkað umtalsvert frá því opnað var fyrir viðskipti fyrr í morgun. Nemur lækkunin nú rétt um 6%, en alls hlaupa viðskipti með bréf félagsins á 33 milljónum króna. 

Rekja má lækkunina til umfjöllunar fréttaskýringarþáttsins Kveiks á Rúv í gærkvöldi. Þar var greint frá því að fyrirtækið hefði losað skipin Laxfoss og Goðafoss í gegnum fyrirtækið GMS, sem er stórt alþjóðafyrirtæki sem sérhæfir sig í því að vera milliliður. Þannig kaupir GMS skip og selur áfram til niðurrifs í Asíu. Umrædd skip voru endurunnin á Indlandi. 

Möguleg brot á Basel-samningi

Er þetta talið vera mögulegt brot á Basel samningnum, sem er í gildi hér á landi. Á hann jafnframt að koma í veg fyrir að iðnríki geti losað mengaðan og hættulegan úrgang til þróunarríkja þar sem minni kröfur eru gerðar til umhverfis- og öryggismála og mannréttindi fótum troðin. 

Líkt og fyrr segir voru ásakanirnar settar fram í þættinum í gær. Eimskip brást við með tilkynningu þar sem fram kemur að fyr­ir­tækið hafi fylgt lög­um og regl­um í sölu­ferl­inu í einu og öllu og hafi selt skip­in til áfram­hald­andi rekstr­ar en ekki til end­ur­vinnslu.

Stendur gengi bréfa Eimskipa nú í 130 kr. og hefur eins fram kemur að ofan lækkað um nær 6%. Í gær stóð gengi hlutabréfanna í 138 kr. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK