Flugöryggismálastofnun Evrópusambandsins, EASA, tilkynnti í dag að mögulega verði flugvélum af gerðinni 737 MAX frá flugvélaframleiðandanum Boeing leyft að fljúga að nýju, mögulega í lok þessa árs. Allar 737 MAX vélar Boeing voru kyrrsettar eftir tvö mannskæð flugslys í fyrra sem urðu samtals 346 manns að bana.
Forstöðumaður EASA, Patrick Ky, sagði við fréttamenn á blaðamannafundi í dag að „í fyrsta sinn í um eitt og hálft ár sjáum við fyrir endann á þeirri vinnu sem ráðist var í vegna kyrrsetningar MAX-vélanna.“
Prófanir EASA og bandarísku flugmálastofnunarinnar, FAA, hafa gengið vel að sögn Patrick en þó eigi enn eftir að ráðast í þjálfun flugmanna MAX-vélanna.
Icelandair kyrrsetti allar sínar MAX-vélar í fyrra í kjölfar slysanna tveggja en félagið á sex vélar og á von á þremur tilviðbótar í vor. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði nýverið í samtali við mbl.is að hann væri vongóður um að MAX-vélarnar verði teknar aftur í notkun hjá Icelandair næsta vor.