Vill afnema löggildingu bakara hér á landi

Angel Gurria, framkvæmdastjóri OECD.
Angel Gurria, framkvæmdastjóri OECD. AFP

Á meðal þess sem Ang­el Gur­ría, fram­kvæmda­stjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), nefndi sérstaklega þegar hann fór yfir reglur sem þyrfti að endurskoða á Íslandi til að draga úr óþarfa reglum og stuðla að aukinni samkeppni var afnám löggildingar fyrir bakara. Þá kom hann inn á aukna skilvirkni í skipulagsmálum og breytt eignar- og rekstrarhald Keflavíkurflugvallar.

Gurría var meðal þeirra sem fluttu ávarp á kynningarfundi um nýja skýrslu OECD um samkeppnismat stofnunarinnar á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði, sem gerð var að beiðni stjórnvalda.

Gurría benti á að beðið hefði verið um skýrsluna árið 2018 þegar atvinnulífið var á fullri ferð, en önnur staða væri uppi núna vegna kórónuveirufaraldursins. Því hefðu áherslur aðeins breyst, en hann benti á að þótt öllum krísum fylgdu erfiðleikar, þá væru þar líka tækifæri. Í þetta skiptið væri grunnurinn að því að koma sterkari til baka að auka framleiðni og sveigjanleika.

Í heild leggur OECD fram 438 tillögur að breyt­ing­um á gild­andi lög­um og regl­um sem snúa að því að skýra betur regluverk fyrir ferðaþjón­ustu og bygg­ing­ariðnað og að draga úr óþarfa reglubyrði til að stuðla að aukinni samkeppni innan greinanna.

Í fyrsta lagi nefndi Gurría að það þyrfti að straumlínulaga skipulagsferla og einfalda leyfismál. Slíkt gæti dregið mikið úr kostnaði.

Í öðru lagi nefndi hann breytingar á reglum um löggildingu starfsgreina.Tók hann sérstaklega dæmi um að hér á landi þyrftu bakarar að vera með sérstök leyfi. Sagði hann að tillaga OECD væri að afnema ætti slíkt og að reglur um matvælaöryggi ættu að vera nægar. Sagði hann breytingar á lögum um löggildingar geta dregið úr kostnaði, bætt val neytenda og ýtt undir atvinnu og framleiðni.

Í skýrslu OECD er einnig lagt til að afnema löggildingu ljósmyndara og taka til skoðunar að draga úr reglubyrði fyrir smiði, rafvirkja, pípara, byggingarstjóra, löggilta hönnuði, fasteignasala, arkitekta og verkfræðinga.

Í þriðja lagi nefndi Gurría svo málefni Isavia og Keflavíkurflugvallar. Benti hann á að kostnaður félagsins væri sá mesti í Evrópu og að skoða ætti breytingar á rekstrar- og eignarhaldi flugvallarins, en hann er í dag í eigu íslenska ríkisins og rekinn af opinbera hlutafélaginu Isavia.

Eins og komið hefur fram í fyrri frétt mbl.is metur OECD að mögulegur ábati af breytingum á þeim reglum sem taldar eru óþarfar og samkeppnishamlandi geti numið allt að 200 milljónum evra, eða sem nemur 30 milljörðum króna, en það er um 1% af vergri landsframleiðslu Íslands.

Upptöku af fundinum má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK