Heimavellir í sókn á markaði

Aðeins ein íbúð er óseld á Hverfisgötu 94-96.
Aðeins ein íbúð er óseld á Hverfisgötu 94-96. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslenska leigufélagið Heimavellir mun skipta um nafn og nefnast Heimstaden Iceland, gangi áætlanir eiganda þess, Fredensborg AS, eftir á nýju ári.

Samkvæmt upplýsingum sem kynntar hafa verið lífeyrissjóðum og öðrum sjóðastýringarfyrirtækjum hér á landi stefnir nýr eigandi Heimavalla að því að fjölga leigueignum í sinni eigu úr 1.500 í 3-4 þúsund á komandi árum og byggja þannig upp rekstrarlega hagkvæmt félag.

Fyrirtækið hefur mikla reynslu af og þekkingu á starfsemi sem þessari og félag sem er í meirihlutaeigu þess á yfir 100 þúsund íbúðir sem það leigir út á Norðurlöndum og á meginlandi Evrópu. Er heildarvirði eignasafnsins metið á ríflega 2.100 milljarða króna.

Heimildir Morgunblaðsins herma að félagið kynni nú fyrirætlanir sínar hér á landi í ljósi þess að til greina komi að fjármagna frekari uppbyggingu að einhverjum hluta með útgáfu skuldabréfa í íslenskum krónum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK