Dreifð álagsárás, sem gerð var á mánudag og hefur verið sögð stór á íslenskan mælikvarða, beindist að Arion banka.
Þetta staðfestir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs bankans, í svari við skriflegri fyrirspurn mbl.is.
Árásin hafði afleiðingar víðar, svo sem hjá fjarskiptafélögunum, vegna bilunar í erlendri varnarþjónustu sem alla jafna hefði dregið mjög úr stærð hennar.
Haraldur bendir á að árásir á borð við þessa hafi fyrst og fremst það markmið að gera fyrirtækjum erfitt fyrir með að veita viðskiptavinum sínum þjónustu.
„Árásin hafði fyrst og fremst áhrif á netbankann okkar og appið í um klukkutíma,“ segir hann og bætir aðspurður við að varnir bankans hafi staðist.