„Þetta er búið að vera alveg ótrúlega gaman. Á fyrsta klukkutímanum eftir opnun á miðnætti [í gær] höfðu 4.300 Íslendingar farið inn á síðuna til að skoða tilboðin sem eru nú um helgina,“ segir Eyrún Anna Tryggvadóttir, einn eigenda POP-markaða. Vísar hún þar til afsláttardagsins svarts föstudags sem fór fram í gær.
Á vefsíðunni Heimapopup.is verður afsláttur alla helgina, en þannig verða tveir stórir netverslunardagar tengdir saman, svartur föstudagur og stafrænn mánudagur. Á vefnum er hægt að nálgast tilboð fjölda verslana. Er síðan því eins konar yfirlitssíða.
Aðspurð segir Eyrún að margir nýti nú tækifærið og klári síðustu jólagjafirnar. „Það er greinilegt að Íslendingar kunna að meta góða afsláttardaga stuttu fyrir jól. Það er bara jákvætt enda dreifist jólaundirbúningurinn betur þannig og minnkar stress hjá fólki,“ segir Eyrún og bætir við að áhugavert verði að taka saman heildarheimsóknir á vefsíðuna yfir helgina.
Á hún allt eins von á að þær verði í kringum hundrað þúsund. „Af því að þetta er heil helgi gefur það fólki meiri tíma til að klára þetta. Fólk þarf því ekki að vera í neinu stressi. Við hvetjum samt alla til að versla á netinu til að losna við að standa í verslunum í ástandinu sem nú ríkir.“