29 starfsmönnum Borgunar var sagt upp í hópuppsögn sem tilkynnt var um í dag hjá fyrirtækinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þar segir enn fremur að alls hafi verið ráðnir tæplega 60 starfsmenn til Borgunar á undanförnum mánuðum í tengslum við umbreytingu Borgunar yfir í þjónustumiðað tæknifyrirtæki.
„Á sama tíma hefur verið dregið úr umsvifum á öðrum sviðum fyrirtækisins til að snúa við rekstrartapi. Það hefur því miður kallað á fækkun starfsfólks á þeim sviðum,“ segir í tilkynningunni.
Í mars á þessu ári var tilkynnt um kaup erlendra fjárfesta á Borgun og voru talsverðar breytingar boðaðar. Borgun sagði meðal annars upp 10 manns í júlí, en hóf einnig að ráða aðra starfsmenn vegna fyrrnefndra breytinga.