Að sögn Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, er ekkert nema gott að segja um jólaverslunina, nú þegar aðeins þrír dagar eru í jólin.
„Alveg greinilegt að áhrifin af því að stærri og stærri hluti viðskiptanna átti sér stað í nóvember og eru á netinu koma fram í því að það eru ekki þessi hefðbundnu læti svona síðustu dagana fyrir jól,“ segir Andrés en bendir þó á að þessa allra síðustu daga fyrir jól sé alltaf mjög mikið álag á matvöruverslunum.
Andrés segir að þótt mikið sé að gera í jólaverslun sé það ekkert brjálæði og hafi verið stígandi í jólaverslun frá því í byrjun nóvember.
Þá virki 100 manna fjöldatakmörkun í hverri búð ágætlega. „Þetta rúllar bara prýðilega í gegn.“
Ýmis met voru slegin í jólaverslun nú í nóvember. Velta Íslendinga í verslunum innanlands nam 46 milljörðum króna og hefur hún aldrei verið meiri í einum mánuði. Þá var netverslun í nóvember 368% hærri en í nóvember í fyrra. Þetta kemur fram á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar.
Auk þess vó netverslun tæp 17% allrar verslunar á landinu í nóvembermánuði. Að sögn Andrésar hefur slík prósenta aldrei nokkurn tímann sést áður.
Þessa hækkun í veltu netverslunar má rekja til blöndu samkomutakmarkana og afsláttardaga í nóvember.
„Það sem er að breytast og hefur breyst núna mjög mikið undanfarin þrjú, fjögur ár er að stærri hluti jólaverslunarinnar flyst yfir í nóvember og það er einkum vegna þessara stóru, alþjóðlegu viðskiptadaga eins og stafræns mánudags og svarts föstudags sem eru í nóvember. Það eru gífurlega mikil viðskipti tengd jólunum sem færast yfir á þessa daga,“ segir Andrés.
Andrés bendir einnig á að fjöldatakmarkanir sem voru í verslunum í nóvember hafi ýtt undir að fólk nýtti sér þessa daga og ætti viðskipti á netinu, en fram til 10. desember máttu einungis tíu viðskiptavinir vera í hverju verslunarrými.