Fjármála- og efnahagsráðherra hefur útbúið greinargerð um ráðgerða sölumeðferð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka í samræmi við ákvæði laga. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fellst þar með á tillögu Bankasýslu ríkisins um að undirbúningur verði hafinn að söluferli Íslandsbanka.
Bankasýslan lagði í síðustu viku fram tillögu til fjármála- og efnahagsráðherra um að hefja sölumeðferð á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka hf. Lagði stofnunin einnig fram samhliða minnisblað til stuðnings tillögunni.
Bjarni hafði áður greint frá því í samtali við mbl.is að honum hugnaðist að sölumeðferð verði hafin á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka. Hann vill að ríkið selji fyrir nokkra tugi milljarða í bankanum áður en kjörtímabilinu lýkur, en segir að til lengri tíma hljóti markmiðið að vera að selja allan eignarhlut ríkisins.
Greinagerð fjármálaráðherra og fylgigögn hafa verið send fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og þess óskað að umsagnir nefndanna liggi fyrir eigi síðar en þann 20. janúar 2021.
Helstu markmið með sölu ríkisins á hlutum í bankanum eru eftirfarandi: