Bláfugl hefur sagt upp 11 flugmönnum fyrirtækisins í hagræðingarskyni. Flugmennirnir eru meðlimir í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna og eru lang launahæstu starfsmenn Bláfugls, að því er fyrirtækið segir í tilkynningu.
Þá segir, að þegar hafi verið ráðist í fjölbreyttar aðgerðir á árinu, svo sem fækkun stöðugilda, flutning í hagkvæmara húsnæði og útvistun hluta af starfsemi. Þá hafi aðrir starfsmenn fyrirtækisins tekið á sig tímabundna kjaraskerðingu á árinu.
Einnig kemur fram, að eftir að uppsagnirnar komi til framkvæmda verði starfsmenn Bláfugls 29 og sjálfstætt starfandi flugmenn 40.
„Bláfugl býður flugmönnum góð kjör sem eru samkeppnishæf við þá markaði sem Bláfugl starfar á. Umræddir flugmenn eru meðal annars íslenskir, danskir, þýskir, belgískir og hollenskir. Bláfugl er eftir sem áður mannað vel hæfu fólki með metnað fyrir sínum störfum. Aðgerðirnar munu því ekki koma niður á starfsemi fyrirtækisins,“ segir í tilkynningunni.
„Þetta eru nauðsynlegar aðgerðir, að segja upp þessum 11 flugmönnum til að tryggja samkeppnishæfni Bláfugls á markaði sem hefur tekið örum breytingum á undanförnum árum. Með þessari aðgerð tryggjum við samkeppnishæfni Bláfugls til framtíðar og eigum möguleika á að hefja vaxtarskeið – með tilheyrandi fjölgun starfa á Íslandi“, segir Sigurður Örn Ágústsson, forstjóri Bláfugls, tilkynningunni.