Frank Michelsen úrsmíðameistari segir söluna hafa stóraukist eftir að hann flutti verslun Michelsen frá Laugavegi á Hafnartorg.
Raunar sé sú ákvörðun ein sú besta sem fjölskyldan hafi tekið í 110 ára sögu verslunarinnar.
Veltuaukningin sé gríðarleg en að öðru leyti trúnaðarmál.
Frank segir í samtali við ViðskiptaMoggann í dag, að gott aðgengi að versluninni og bílakjallari eigi þátt í auknum viðskiptum.