Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku. Segir í fréttatilkynningu að Kristinn hafi áður starfað sem forstöðumaður virkjanareksturs hjá Orku náttúrunnar en fyrir það í 14 ár sem framkvæmdastjóri hjá Alcoa bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Kristinn er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá DTU í Danmörku auk B.Sc.-gráðu í iðnaðartæknifræði frá Tækniskóla Íslands.
„Það er mikið gleðiefni að fá Kristin til liðs við HS Orku. Hann er gríðarlega reynslumikill stjórnandi með víðfeðma þekkingu á rekstri. Hann kemur með ferska sýn á verkefnin og ég er sannfærður um að hann mun reynast okkur öflugur liðsstyrkur,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, í fréttatilkynningu.
Kristinn mun koma til með að stýra allri framleiðslu HS Orku í jarðvarmavirkjununum í Svartsengi og á Reykjanesi auk vatnsaflsvirkjunarinnar á Brú í Tungufljóti, að því er segir í fréttatilkynningu.
Kristinn er kvæntur Hildi Briem og saman eiga þau þrjú börn.
„HS Orka hefur verið leiðandi í framleiðslu á endurnýjanlegri orku í 45 ár. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur sérfræðinga með mikla reynslu á sínu sviði. Fyrirtækið á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið Svartsengi og Reykjanesvirkjun auk einnar vatnsaflsvirkjunar í Brúará í Tungufljóti. Fyrirtækið er að hefja vinnu við stækkun Reykjanesvirkjunar um 30 MW,“ segir í tilkynningu.