Fjárfestingarfélagið Sculptor Investments hefur selt nær helmingshlut sinn í Arion banka. Eftir söluna fer félagið með 3,83% hlut í bankanum. Þetta kemur fram í flöggunartilkynningu til Kauphallarinnar, þegar farið var undir 5% mörk.
Fyrir átti sjóðurinn 6,12% og miðað við gengið 94 krónur á hlut nemur salan rúmlega 3,7 milljörðum.
Viðskipti með bréf í bankanum námu tæpum 4,5 milljörðum króna í gær og hækkaði hlutabréfaverð um 1,49%.