Kínverski auðkýfingurinn Jack Ma kom í fyrsta skipti fram opinberlega í dag eftir að hafa horfið af sjónarsviðinu í tvo mánuði. Ma kom fram í myndskeiði á netinu en vikum saman hafa verið uppi vangaveltur um hvarf hans.
Ma, sem er einn ríkasti maður Kína, hvarf af opinberum vettvangi snemma í nóvember á sama tíma og hann þurfti að standa fyrir máli sínu fyrir eftirlitsstofnunum vegna ræðu sem hann flutti í október. Í ræðunni gagnrýndi hann harðlega fjármálakerfi Kína.
Eignir Ma eru metnar á um 58 milljarða bandaríkjadala en hann stofnaði vefverslunina Alibaba á sínum tíma. Skömmu fyrir eldræðuna höfðu kínverskar eftirlitsstofnanir stöðvað fyrirhugað hlutafjárútboð Ant Group, sem m.a. rekur greiðslumiðlunina Alipay. Um var að ræða eitt stærsta hlutafjárútboð sögunnar en til stóð að safna hlutafé fyrir 37 milljarða dala.
Myndskeiðið með Ma var sýnt þar sem kennarar á afskekktum stöðum voru hvattir til dáða og þakkað fyrir vel unninn störf. Um er að ræða athöfn sem er skipulögð af góðgerðarfyrirtæki í eigu Ma. Myndskeiðið var birt á samfélagsmiðlum og á kínverskum fréttavefjum. Ma var kennari áður en hann færði sig yfir í viðskiptalífið.
Hlutabréf í Alibaba hækkuðu um 7% í verði í kauphöllinni í Hong Kong í kjölfarið.
Frá því hlutafjárútboð Ant var stöðvað hefur samkeppniseftirlit Kína hafið rannsókn á Alibaba og er rannsakað hvort brotin hafi verið samkeppnislög með einokun á markaði.