„Frétt sem birtist á RÚV þess efnis að dótturfélag Skeljungs, P/F Magn, væri komið í söluferli, er ekki rétt“. Á þessum orðum hefst yfirlýsing Skeljungs til Kauphallar fyrr í dag. Hafnar olíufélagið þar fréttum af meintu söluferli dótturfélags þess.
Í tilkynningunni segir enn fremur að vísað hafi verið til þess í frétt RÚV að salan væri hluti af endurskipulagningu Skeljungs. Það er þó ekki rétt þar sem engar ákvarðanir hafa verið teknar um endurskipulagningu þess.
Í viðtali við ViðskiptaMoggann fyrr í mánuðinum greindi Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Skeljungs, frá því að til greina kæmi að selja rekstur félagsins í Færeyjum, P/F Magn. Þá sé enn fremur til skoðunar að fjárfesta þess í stað í Bretlandi. Engar ákvarðanir þess efnis hafa þó verið teknar.