Samkomulag hefur náðst milli hluthafa ÍSAM ehf. annars vegar og hluthafa Ó. Johnson & Kaaber ehf. og Sælkeradreifingar ehf. hins vegar um að sameina heildsölurekstur fyrirtækjanna í nýju félagi. Samruninn er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Fram kemur í tilkynningu, að fyrirhuguð sameining nái eingöngu til heildsöluhluta fyrirtækjanna þriggja en ekki framleiðslufyrirtækja á þeirra vegum (Nýja kaffibrennslan, Kaffitár, Myllan, Ora, Kexverksmiðjan Frón, Kexsmiðjan) sem verða áfram í eigu núverandi hluthafa.
Það er tekið fram að aðilar að samkomulagsins muni ekki tjá sig um fyrirhugaða sameiningu á meðan hún sé til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Ó. Johnson & Kaaber er meðal elstu starfandi fyrirtækja landsins og fagnar 115 ára afmæli á þessu ári. Frá stofnun þess árið 1906 hefur ÓJ&K höndlað með margs konar innfluttan varning, einkum þó matvæli og hreinlætisvörur. Árið 2006 keypti ÓJ&K heildsöluna Sælkeradreifingu sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu til stóreldhúsa, s.s. veitingahúsa, mötuneyta og hótela. Kaffibrennsla ÓJ&K, stofnuð 1924, hefur frá árinu 2000 starfað undir nafni Nýju kaffibrennslunnar sem árið 2018 keypti framleiðslu og rekstur Kaffitárs. Starfsmenn ÓJ&K og SD eru um 70 talsins. Nýja kaffibrennslan og Kaffitár verða ekki hluti af fyrirhugaðri sameiningu og verða áfram í eigu núverandi hluthafa, að því er segir í tilkynningunni.
ÍSAM var stofnað í apríl 1964 og hefur frá upphafi lagt höfuðáherslu á að flytja inn og markaðssetja þekkt vörumerki í náinni samvinnu við framleiðendur en fyrirtækið var áður þekkt sem Íslensk-Ameríska. Upp úr aldamótum 2000 bættust við samstæðuna framleiðslufyrirtækin Myllan, Ora, Frón og Kexsmiðjan á Akureyri. Starfsmenn heildsöluhluta ÍSAM eru um 60 talsins. Framleiðslueiningarnar verða áfram í eigu núverandi hluthafa, segir ennfremur
Fjármálaráðgjöf Deloitte hefur umsjón með fyrirhugaðri sameiningu ásamt lögmannsstofunum LOGOS og Juris.