Marel hefur gengið frá kaupum á fyrirtækinu PMJ, alþjóðlegum framleiðanda hátæknilausna fyrir andaiðnað. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að vöruframboð Marel og PMJ falli vel saman og í sameiningu geti félögin boðið viðskiptavinum í andaiðnaði upp á heildarlausnir fyrir allt vinnsluferlið í iðnaðinum.
Þá segir að Marel muni í kjölfar kaupanna vera í sterkari stöðu til þess að stækka viðskiptavinahóp sinn í andaiðnaði og þannig nýta sitt alþjóðlega sölu- og þjónustunet.
Alþjóðlegur markaður fyrir andakjöt fer ört stækkandi. Áætlað virði markaðarins á heimsvísu er um 6 milljarðar evra, andvirði um 945 milljarða króna, og er um 70% alls andakjöts á Kínamarkaði þar sem Marel er með sterka stöðu og starfsemi, eins og segir í tilkynningunni.
PMJ er með 5 milljónir evra í árstekju, andvirði um 780 milljóna króna, og um 40 starfsmenn í starfstöðvum sínum í Opmeer í Hollandi. Stjórnendur PMJ munu áfram starfa hjá félaginu svo að tryggja megi samfellu í rekstri og viðhalda viðskiptasamböndum.
„Við erum mjög ánægð með kaupin. Það er rökrétt skref fyrir Marel að útvíkka þriðju stoðina í kjúklingaiðnaði með því að styrkja starfsemi sína í þróun og framleiðslu lausna fyrir andaiðnað til viðbótar við kjúklinga- og kalkúnaiðnað. Marel og PMJ eiga það sameiginlegt að búa yfir mikilli tækniþekkingu og reynslu á sviði nýsköpunar og þróunar.
Lausnir PMJ búa yfir miklum gæðum sem eru til vitnis um 23 ára reynslu félagsins af nýsköpun í þróun lausna fyrir andaiðnaðinn. Með því að sameina krafta okkar og leggja áfram áherslu á nýsköpun erum við í sterkari stöðu til að umbylta andaiðnaðinum í samstarfi við okkar viðskiptavini,“ er haft eftir Roger Claessens, framkvæmdastjóra kjúklingaiðnaðar hjá Marel.
„Við erum stolt af PMJ og þeim árangri sem við höfum náð í samstarfi við okkar starfsfólk og viðskiptavinum út um allan heim. Þegar reynsla okkar, þekking og hágæðalausnir sameinast alhliða þekkingu Marel og alþjóðlegu sölu og þjónustuneti þeirra verðum við í stakk búin til að taka næsta skref áfram og þjónusta okkar viðskiptavini betur en nokkru sinni fyrr,“ er haft eftir Bas van der Veldt, forstjóra PMJ.