Gunnar Ólafsson til Þekkingar

Gunnar Ólafsson tekur við starfi sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs Þekkingar.
Gunnar Ólafsson tekur við starfi sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs Þekkingar. Ljósmynd/Aðsend

Gunnar Ólafsson hefur tekið við stöðu sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs hjá Þekkingu og tekur um leið sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Þar mun Gunnar fara fyrir sölu- og markaðsdeild sem og viðskiptastýringu og vinna að metnaðarfullum markmiðum fyrirtækisins.

Gunnar mun koma með ferska sýn í verkefnin sem liggja á sviðinu, innleiða nýja aðferðafræði og ferla, greina ný tækifæri á markaði, skilgreina aðgerðir og framkvæma segir í tilkynningu frá Þekkingu. Honum er ætlað að innleiða nýstárlegar, stafrænar og spennandi hugmyndir inn í starfsemi Þekkingar.

Lengst af sínum starfsferli hefur Gunnar starfað við sölu og stjórnun söluteyma sem og uppbyggingu þeirra. Gunnar var meðstofnandi Netgíró þar sem hann stýrði sölu og viðskiptaþróun um árabil en kemur til Þekkingar frá Perlunni þar sem hann var sölu- og markaðsstjóri.

Áður hafði Gunnar starfað sem sölustjóri alþjóðadeildar Valitor og sölu- og markaðsstjóri Aha.is. Hann er með viðskiptafræðigráðu frá Háskólanum í Reykjavík og MBA gráðu frá Copenhagen Business School auk IPMA-D vottunar í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. Þá er hann með MiniMBA í markaðsfræði og vörumerkjastjórnun frá Akademias.

„Það sem heillaði mig við Þekkingu var skýr framtíðarsýn og hlutverk fyrirtækisins sem leiðandi þjónustuaðili á íslenskum UT markaði. Þegar ég kynntist svo starfsfólkinu sá ég hversu skemmtilegt verkefni það verður að leiða hópinn til árangurs með leikgleði og ofurþjónustu að leiðarljósi,” segir Gunnar.

„Það er mikill fengur fyrir Þekkingu og viðskiptavini okkar að fá Gunnar í liðið. Víðtæk reynsla hans og þekking kemur til með að styrkja okkar frábæra hóp enn frekar og gerir okkur vel í stakk búin til þess að takast á við krefjandi og spennandi tíma framundan. Við bjóðum hann velkominn til starfa og hlökkum mikið til samstarfsins,” segir Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK