Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að hefja sölumeðferð á hlutum í Íslandsbanka í samræmi við tillögu Bankasýslu ríkisins þann 17. desember sl. Þetta kemur fram í bréfi sem ráðherra sendi Bankasýslunni í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Greinargerð fjármála- og efnahagsráðuneytisins um söluna var lögð fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og einnig send Seðlabanka Íslands til umsagnar í samræmi við ákvæði laga, segir ennfremur.
„Í greinargerðinni komu fram upplýsingar um helstu markmið með sölu eignarhlutarins, hvaða söluaðferð yrði beitt og hvernig sölumeðferð yrði háttað að öðru leyti.
Báðar nefndirnar mæltu með því að hafist yrði handa við undirbúning útboðs á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka og skráningu hlutanna á markað. Einnig veitti Seðlabanki Íslands umsögn, dags. 15. janúar sl. þar sem fram kemur að talið sé að jafnræði bjóðenda verði tryggt, auk þess sem fyrirhuguð sala er talin hafa takmörkuð áhrif á gjaldeyrismarkað, gjaldeyrisforða bankans og laust fé í umferð,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir, að með bréfi ráðherra sé Bankasýslu ríkisins falið, í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið, að tryggja að útfærslur á útboðs- og úthlutunarskilmálum verði í samræmi við eftirfarandi ábendingar sem fram koma í umsögnum þingnefndanna eins og kostur er og að færð verði viðunandi rök fyrir því ef víkja þurfi frá þeim að verulegu leyti:
Einnig sé Bankasýslunni falið að skoða hvort það samræmist markmiðum ríkisins um hámörkun ábata af eignarhaldi og sölu á hlutum í Íslandsbanka að hann greiði út arð fyrir útboðið umfram 3-4 ma.kr. og ef það teljist ekki ráðlegt að færð séu viðunandi rök fyrir því áliti.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/01/20/midstjorn_asi_a_moti_solu_islandsbanka/
Þá muni ráðuneytið, í samstarfi við Bankasýslu ríkisins, leggja fram tillögu að áætlun um reglubundna upplýsingamiðlun til þingnefndanna um framvindu og undirbúning útboðsins, ekki síst varðandi markaðsaðstæður. Lögð er áhersla á að slík upplýsingagjöf þurfi hverju sinni að taka mið af undirliggjandi hagsmunum ríkisins og því regluumhverfi sem gildir um skráningu hlutabréfa á skipulegan verðbréfamarkað, sölu hlutabréfa almennt og um upplýsingar félags með skráð skuldabréf á markaði.
Fyrirhuguð sölumeðferð er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki og ákvæði laga um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Með sölunni er stefnt að eftirfarandi markmiðum: