Framlegð Origo nam 1.231 milljónum króna á fjórða fjórðungi ársins 2020 og alls 4.288 milljónum króna á árinu í heild sinni. EBITDA félagsins nam 381 milljón króna á ársfjórðungnum og 1.245 milljónum króna á öllu árinu.
Í tilkynningu frá félaginu er haft eftir forstjóranum Jóni Björnssyni að árangur Origo á síðasta ári hafi verið góður. Tekjurnar hafi aukist um fimmtán prósent.
„Mikill afkomubati er á notendalausnasviði félagsins og vel hefur tekist til að halda góðri afkomu á hugbúnaðarsviðum þess. Afkoma af rekstrarþjónustu er viðunandi miðað við breytingar í umhverfinu en aukin stærðarhagkvæmni er nauðsynleg til að bæta afkomu af slíkri þjónustu,“ segir Jón.
„Félagið setti heilsu og öryggi starfsfólks í forgang og vann vel í því að skapa aðstæður svo félagið mætti halda áfram góðum rekstri. Vel útfærð fjarvinnustefna og skilvirk samskipti urðu til þess að góður árangur náðist við stór innleiðingaverkefni og félagið gerði hluti sem líklega hefðu aldrei verið prófaðir við eðlilegar aðstæður.“
Hann bendir á að hluti af hugbúnaðarsviðum Origo hafi staðið frammi fyrir miklum áskorunum í upphafi árs þegar tekjur frá ferðaiðnaði drógust verulega saman, en félagið hafi unnið að nokkrum nýsköpunarverkefnum í stafrænum ferðalausnum.
„Félagið tók stefnumarkandi ákvörðun að halda áfram að fjárfesta í ferðavörum og vera tilbúið þegar ferðaiðnaðurinn tekur við sér að nýju en starfsmenn færðust einnig yfir í verkefni þar sem meiri eftirspurn var eins og í heilbrigðislausnum og verkefnum tengdum stafrænum umbreytingum. Þannig tókst félaginu að snúa þeim rekstri við á seinni helmingi ársins,“ segir Jón.
„Á árinu er Origo einna stoltast af verkefni tengdu landamæraskimun, sýnatöku og bólusetningum en þar var félagið í lykilhlutverki og sýndi hversu vel má treysta því að vinna flókin og umfangsmikil verkefni hratt og vel. Fyrirtækið átti einnig einstakt ár þegar kemur að innleiðingu fjárhagskerfa, bankalausna og mannauðs- og launalausna hérlendis á sama tíma og Applicon, sænskt dótturfélag Origo, átti metár í tekjum,“ segir Jón og heldur áfram:
„Sífellt fleiri viðskiptavinir sjá hag sínum betur borgið með útvistun í stað þess að reka sína eigin innviði þegar kemur að upplýsingatækni og sér Origo vaxandi eftirspurn eftir slíkri þjónustu. Miklar umbreytingar eru að eiga sér stað í rekstrarþjónustu tæknifyrirtækja í kjölfar aukinnar áherslu á skýjaþjónustu.
Origo leggur áherslu á að fylgja eftir þessum breytingum. Markmið félagsins er ekki að reka gagnaver, heldur að vera sterkur samstarfsaðili sem býður landfræðilegan aðskilnað á kerfum og gögnum. Origo leggur áherslu á að geta tekið við þjónustu og rekið hana fyrir viðskiptavini, hvort sem hún er hýst á Íslandi eða hjá erlendum skýjum. Samhliða er félagið í stöðugri umbótavinnu við að auka sjálfvirkni og hagkvæmni í rekstarþjónustu en mikil þörf er að ná stærðarhagkvæmni svo hægt sé að ná meira en viðunandi arðsemi af slíkri þjónustu.“
Hann tekur fram að skilyrði fyrir sölu á notendabúnaði hafi verið hagfelld síðastliðna mánuði og skili það, ásamt breyttum áherslum í rekstri, mjög viðunandi arðsemi á því sviði.
„Töluverð áskorun að tryggja búnað til viðskiptavina vegna vöruskorts á heimsvísu en þekking og sterk sambönd við samstarfsaðila gerðu gæfumun. Söluaukning notendabúnaðar er rúm 20%, annað árið í röð. Flutningur sölu frá hefðbundinni verslun yfir á netið hefur skilað 152% veltuaukningu netverslana Origo samhliða því að fjárfesting félagsins í Tölvutek á sl. ári, og mikil þekking á hljóð- og myndlausnum skilar Origo góðum árangri.
Tempo, sem er hlutdeildarfélag Origo, hefur átt ágætt ár. Það er að einhverju leyti litað af Covid-19 en einnig af breytingum er stuðla að því að geta sett félagið í næsta vaxtarfasa. Viðskiptavinir félagsins nema nú rúmlega 20.000 fyrirtæki og undirliggjandi er góð veltuaukning í áskriftartekjum og skýr áhersla á áframhaldandi tilfærslu úr miðlægum umhverfum í skýjalausn,“ segir Jón.
„Við erum sátt við niðurstöðu ársins 2020. Aðstæður í kjölfar Covid-19 voru þess eðlis að fyrirtækið þurfti að aðlaga sig hratt að nýjum veruleika. Það tókst með samstilltu átaki starfsfólks. Nýjar vinnuaðstæður og breytingar á umhverfi viðskiptavina voru þess eðlis að enduhugsa þurfti allt vinnulag sem og að margar einingar tókust á við miklar breytingar á tekjusamsetningu. Finna þurfti ný tækifæri og samhliða sinna aukinni eftirspurn á fjölmörgum sviðum. Mest af þessu þurfti að eiga sér stað í fjarvinnu.
Origo hefur tekið fyrstu skref í að skerpa samfélagslegar áherslur sínar en félagið hefur mikinn hug á því að ná enn frekari árangri þegar kemur að jafnrétti kynjanna, eflingu nýsköpunnar, ábyrgri neyslu, umhverfismálum, heilsu og vellíðan starfsfólks.
Origo er spennt fyrir verkefnum 2021. Vissulega eru óvissumerki í efnahagslífinu en verkefnastaða félagins í hugbúnaði er góð og umhverfið almennt hagfellt fyrir fyrirtæki í upplýsingatækni, hvort sem eru í þróun hugbúnaðar eða sölu notendabúnaðar.“