Hrannar Ásgrímsson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra hjá 1xINTERNET á Íslandi. Hrannar, sem er með víðtæka reynslu úr tækni- og fjármálageiranum í verkefnastýringu, kemur til 1xINTERNET frá Creditinfo þar sem hann starfaði sem verkefna- og vörustjóri.
Þar áður starfaði Hrannar m.a. hjá CoreMotif, LS Retail og Símanum, að því er fram kemur í tilkynningu.
Arnar Þór Sigurðarson, framkvæmdastjóri 1xINTERNET á Íslandi, segist ánægður með að fá Hrannar í hópinn. „Það er alltaf gott að fá reynt fólk eins og Hrannar í sitt lið, reynsla hans í að stýra flóknum hugbúnaðarverkefnum á eftir að reynast viðskiptavinum okkar á Íslandi mjög vel.“
1xINTERNET er svokallað Drupal-veffyrirtæki sem dregur nafn sitt af hugbúnaðinum sem notaður er til þess að hanna heimasíður, vefverslanir og aðrar netlausnir fyrir viðskiptavini. Það hefur unnið með fjölda íslenskra fyrirtækja og stofnana undanfarin ár, má þar meðal annars nefna Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun, Mikluborg, Pennann/Eymundsson, Hugverkastofu og Eldum rétt. Helstu viðskiptavinir 1xINTERNET erlendis eru meðal annars Unity Technologies, Jägermeister, EFTA og Nestlé.