Hæstiréttur hefur hafnað að taka fyrir mál Umhverfisstofnunar (UST) gegn þrotabúi WOW air, en Landsréttur hafði áður staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu þar sem hafnað var þeirri kröfu UST að þrotabú Wow air yrði gert að skila stofnuninni samtals 516 losunarheimildum inn í ETS-skráningarkerfi með losunarheimildir sem eru í umsjón UST.
Heimildirnar voru í vörslum þrotabúsins en voru svo seldar með samning í apríl 2019 til CFP Energy Limited. Í úrskurði Landsréttar segir m.a. að óumdeilt sé að réttindin séu ekki lengur í vörslum þrotabúsins.
Umhverfisstofnun krafðist viðurkenningar á tiltekinni stöðu réttindanna í skuldaröð við gjaldþrotaskipti, þ.e. að um sértökukröfu væri að ræða, og skila þrotabúsins á þeim, en hefði kosið að falla frá kröfu um skil á andvirði réttindanna. Af því leiddi að ágreiningnum yrði ekki ráðið til lykta á grundvelli 2. mgr. 109 gr. laga um gjaldþrotaskipti, heldur byggðist málatilbúnaður Umhverfisstofnunar á 1. mgr. sama lagaákvæðis.
Landsréttur sagði, að ef úrskurður gengi um kröfu stofnunarinnar á þeim grunni yrði þannig komist að niðurstöðu sem ekki væri unnt að fullnægja samkvæmt efni sínu. Því var úrskurðurinn staðfestur og kröfu UST hafnað.
Hæstiréttur féllst ekki á að kæruefnið varði mikilsverða almannahagsmuni eða hafi slíkt fordæmisgildi að það uppfylli skilyrði um að Hæstiréttur taki málið fyrir. Var beiðninni því hafnað.