Hluthafar Bakkastakks, sem heldur utan um eignarhlut Íslandsbanka og lífeyrissjóða í kísilveri PCC á Bakka, hafa fært niður hlutafé og skuldbreytt lánum sínum til félagsins. Niðurfærsla skuldabréfa og hlutafjár nemur 11,6 milljörðum. Þetta kemur fram í Markaðnum, fylgiblaði Fréttablaðsins í dag.
Fjárhagslega endurskipulagningin kom til vegna uppsafnaðs taps. Þá hefur mat eigna lækkað í kjölfar faraldurs, rekstrarerfiðleika og tímabundinnar lokunar. Sigurgeir Tryggvason, framkvæmdastjóri Summu, sem heldur um rekstur Bakkastakks, segir í samtali við Markaðinn skuldbreytinguna hafa verið til að endurspegla betur þær breytingar sem hafa orðið á eignahliðinni.