Gunnar verður yfir öllum álverum Century Aluminum

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls og yfirmaður allra álvera Century Aluminum.
Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls og yfirmaður allra álvera Century Aluminum. Ljósmynd/Aðsend

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, hefur verið ráðinn til að stýra álverum Century Aluminum í Evrópu og Norður-Ameríku og fær hann starfstitilinn „Executive Vice President, Global Operations“ og mun hann bera ábyrgð á rekstri álvera Century Aluminum um allan heim. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Fyrirtækið á og rekur álver á Grundartanga, þrjú álver í Bandaríkjunum og rafskautaverksmiðju í Hollandi. Samanlögð ársframleiðsla er yfir milljón tonn af áli.

Gunnar hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2008. Fyrst sem framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga og sem forstjóri frá árinu 2019. Því hlutverki mun hann sinna áfram.

Gauti Höskuldsson er nýr yfir maður hjá Century Aluminum og …
Gauti Höskuldsson er nýr yfir maður hjá Century Aluminum og hefur tekið við stöðunni „Vice President, Global Operations“. Ljósmynd/Aðsend

Gauti Höskuldsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra skautsmiðju og kerskála Norðuráls, mun jafnframt taka við nýrri stöðu hjá Century Aluminum sem „Vice President, Global Operations“ og starfa með Gunnari hér heima og ytra. Gauti hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 1999 en hefur gegnt hlutverki framkvæmdastjóra skautsmiðju- og kerskála frá 2009.

Sigrún Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga og mun hafa yfirumsjón með daglegum rekstri álversins. Sigrún hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2012, síðustu ár sem framkvæmdastjóri starfsmanna- og innkaupasviðs. Áður starfaði Sigrún m.a. hjá Kaupþingi, í Kauphöllinni í Ósló og Verðbréfaþingi Íslands.

Sigrún Helgadóttir nýr framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga.
Sigrún Helgadóttir nýr framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga. Ljósmynd/Aðsend

Birna Björnsdóttir tekur við stöðu framkvæmdastjóra skautsmiðju- og kerskála. Birna hóf störf hjá Norðuráli árið 2005 og hefur sinnt ýmsum störfum innan fyrirtækisins. Síðustu ár hefur hún starfað sem deildarstjóri framleiðslustýringar.

Birna Björnsdóttir tekur við stöðu framkvæmdastjóra skautsmiðju- og kerskála hjá …
Birna Björnsdóttir tekur við stöðu framkvæmdastjóra skautsmiðju- og kerskála hjá Norðuráli. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK