Þrír nýir sérfræðingar til Dohop

Daði Steinn Brynjarsson, Ingi Fjalar Magnússon og Kristján Þór Jónsson.
Daði Steinn Brynjarsson, Ingi Fjalar Magnússon og Kristján Þór Jónsson.

Dohop hefur ráðið til sín þrjá nýja sérfræðinga til að styðja við frekari vöxt félagsins. 

Íslenska ferðatæknifyrirtækið tryggði sér nýlega á annan milljarð íslenskra króna í fjármögnun frá Scottish Equity Partners (SEP), breskum fjárfestingasjóði sem sérhæfir sig í fjárfestingum í vaxandi tæknifyrirtækjum.  

Dohop hyggst nýta fjármagnið til þess að byggja upp félagið og ráða fólk með tækniþekkingu á Íslandi en höfuðstöðvar félagsins eru hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Ingi Fjalar Magnússon.
Ingi Fjalar Magnússon.

Ingi Fjalar Magnússon hefur verið ráðinn tæknilegur vörustjóri hjá Dohop. Um er að ræða stöðu sem ýtir undir enn frekara þróunarstarf félagsins sem stefnir á að efla markaðsdrifna sókn sína á alþjóðlegum mörkuðum. 

Ingi Fjalar hefur um 20 ára reynslu af verkefnastjórnun, hugbúnaðarþróun og innleiðingu tölvukerfa, bæði erlendis og hér heima. Hann starfaði meðal annars um 11 ára skeið sem verkefnisstjóri hjá alþjóðlega fyrirtækinu Statoil þar sem hann vann að uppbyggingu hugbúnaðar og innleiðingu tölvukerfa í Noregi, Suður-Kóreu og Skotlandi. Einnig hefur hann starfað hjá Össuri, Nordea-bankanum og Applicon. 

Ingi Fjalar er með MBA-gráðu frá BI-viðskiptaháskólanum í Noregi ásamt því að vera tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands. 

Daði Steinn Brynjarsson.
Daði Steinn Brynjarsson.

Daði Steinn Brynjarsson hefur verið ráðinn sem forritari hjá Dohop. Daði lauk námi í tölvunarfræði hjá Háskólanum í Reykjavík síðastliðið haust og kom til Dohop í beinu framhaldi. Daði er hluti af teymi sem sér meðal annars um að hanna hugbúnað til að betrumbæta þjónustu til viðskiptavina Dohop. Innan teymisins mun Daði leggja hjálparhönd sem viðmótsforritari.

Kristján Þór Jónsson.
Kristján Þór Jónsson.

Kristján Þór Jónsson hefur verið ráðinn sem nýr hugbúnaðarsérfræðingur hjá Dohop. Hann mun starfa í teymi sem sér um greiðslulausnir Dohop þar sem hann mun vinna við að þróa áfram bókunarkerfið til að taka við greiðslum hnökralaust. 

Kristján er með BSc í fjármálaverkfræði og einnig í hugbúnaðarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann starfaði við hátíðniviðskipti síðastliðin fjögur ár fyrir World Financial Desk. 

„Dohop er tæknifyrirtæki stofnað á Íslandi árið 2004 og hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir tækni sína og vörur. Grunntækni Dohop snýst um að smíða tengiflug og hjálpa flugfélögum að selja tengiflug í félagi við önnur flugfélög. Dohop hefur þróað tækni fyrir flugfélög, flugvelli og samtök flugfélaga um allan heim á borð við easyJet, Transavia, Eurowings, Jetstar, Gatwick og SkyTeam,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK