Creditinfo hefur opnað fyrir gjaldfrjálsan aðgang að skönnuðum frumritum ársreikninga á vef sínum. Á þjónustuvef Creditinfo og í vefverslun á opnum vef geta almennir notendur jafnt sem áskrifendur nú sótt gjaldfrjálst skönnuð frumrit af ársreikningum.
Ársreikningagrunnur Creditinfo hefur að geyma rúmlega 550 þúsund ársreikninga, en fyrirtækið hefur að geyma stærsta safn viðskiptaupplýsinga á Íslandi. Safn ársreikninga íslenskra fyrirtækja nær aftur til ársins 1995.
„Það er okkur mikið fagnaðarefni að geta nú boðið skönnuð frumrit af ársreikningum gjaldfrjálst. Eftir lagabreytingar sem tóku gildi um áramót opnaði Skatturinn á niðurhal reikninga á vef sínum. Enn er þó beðið eftir reglugerð sem skýrir áhrif breytinganna á samninga um afhendingu gagna til miðlara eins og Creditinfo. Við höfum engu að síður ákveðið að afhenda þá gjaldfrjálst með einföldum hætti á vef okkar,“ er haft eftir Brynju Baldursdóttur, framkvæmdastjóri Creditinfo í tilkynningu.
Áreiðanlegustu upplýsingar um rekstur fyrirtækja er oftast að finna í ársreikningum þeirra. Með upplýsingum úr ársreikningi er meðal annars hægt að leggja mat á það hversu vel rekstur fyrirtækis hefur gengið síðustu ár, stærð fyrirtækisins, skuldsetningu og fleira.