Fyrsta áætlunarflugið með Boeing 737 MAX-þotu síðan kyrrsetning véla af þessari tegund var aflétt í Evrópu, fór fram í dag þegar flugvél flugfélagsins TUI tók af stað frá flugvelli í Brussel og lenti um tveimur klukkustundum síðar í Malaga á Spáni.
Þrjár vikur eru síðan flugöryggismálastofnun Evrópusambandsins (EASA) aflétti kyrrsetningu MAX-vélanna en þær voru kyrrsettar í Evrópu og víðar eftir mannskætt flugslys í Eþíópíu í mars árið 2019. Nokkrum mánuðum áður, í október 2018, fórust 189 manns þegar MAX-flugvél Lion Air hrapaði í sjóinn við strönd Indónesíu. Alls fórust 346 í flugslysunum. Independent greinir frá.
Slysin voru rakin til galla í stýrikerfi vélanna. Hugbúnaður og skynjarar áttu að koma í veg fyrir ofris vélanna í ákveðnum aðstæðum en gallinn gerði það að verkum að sjálfstýringin greip inn í án þess að tilefni væri til og stýrði vélunum í átt að jörðu.
Stýrikerfi MAX-vélanna hefur verið endurhannað og aðrar ráðstafanir gerðar. Nokkuð er liðið síðan flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum gáfu Boeing MAX græna ljósið og í ferðum að undanförnu hefur allt gengið vel og ekkert óvænt komið upp.
Búist er við að Icelandair taki MAX-vélar sínar aftur í rekstur á vormánuðum.