Íslensk verslun blómstrar og mælist í heildina 11% vöxtur á milli ára en inni í þeim tölum er innlend og erlend kortavelta. Samanlögð verslun vex um 50 milljarða á milli ára, þrátt fyrir 60% samdrátt í verslun erlendra ferðamanna.
Þetta kemur fram í tölum Rannsóknarseturs verslunarinnar um þróun verslunar árið 2020.
Neysluhegðun Íslendinga breytist lítið á milli ára sem í heildina eyða mestu í stórmörkuðum og dagvöruverslunum.
Aukning mælist í flestum vöruflokkum innlendrar verslunar á milli ára, fyrir utan samdrátt í tollfrjálsri verslun sem og bóka, blaða og hljómplötuverslun.
Vefverslun mælist 7% af innlendri verslun og vex um 152% á milli ára.