Reynir Bjarni Egilsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra útgáfulausna hjá kortafyrirtækinu Valitor. Á sama tíma sameinuðust deildirnar útgáfulausnir og útgáfuvinnsla undir nafni þeirrar fyrrgreindu.
Útgáfulausnir sinna allri þjónustu, rekstri og hugbúnaðarþróun fyrir þær lausnir sem Valitor býður bönkum og sparisjóðum í tengslum við útgáfu greiðslukorta, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Reynir Bjarni hefur langa reynslu af störfum á greiðslukortamarkaði og hefur starfað hjá Valitor síðan 2004. Þar hefur hann m.a. starfað við söluráðgjöf, fjármál, vörustýringu og nú síðast sem stjórnandi á vöruþróunar- og rekstrarsviði.
Reynir Bjarni er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.