Með því að velja íslenska hönnun inn í nýbyggingar myndi hið opinbera styðja við iðnaðinn á krefjandi tímum. Jafnframt myndi fordæmið hafa jákvæð áhrif á eftirspurnina til framtíðar. Skapa ný vörumerki.
Þetta segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, í samtali í ViðskiptaMogganum í dag.
Tilefnið er að nú eru að rísa byggingar í miðborginni sem kosta samtals ekki undir 70 milljörðum.